Valur tók á móti KR í kvöld í 17. umferð Pepsi-deildar karla. Það er alltaf rígur og mikil stemming á milli þessara Reykjavíkurliða, ekki þá síst stuðningsmanna liðanna og því mátti búast við fjöri á Vodafone-vellinum í kvöld. Úrslit leiksins urðu hinsvegar þau að KR vann öruggan sigur á Val, lokatölur 4-1 fyrir KR.
Valur 1- 4 KR
0-1, Kjartan Henry Finnbogason 55. mín.
0-2, Mark Rutgers 57 mín.
0-3, Óskar Hauksson 62 mín.
0-4, Óskar Hauksson 64 mín.
1-4, Jón Ákason, 77 mín.
Leikurinn byrjaði fjörlega, bæði lið áttu skot yfir markið en mikill hraði var í leiknum og leikmenn greinilega staðráðnir í að leggja allt sitt af mörkum. Miðjumenn Vals virkuðu þó taugatrekktir og lélegar sendingar þeirra bjuggu til sóknarfæri fyrir KR en skot Kjartans Henrý og Björgólfs fóru yfir markið. Fyrstu fimmtán mínútur leiksins voru KR.
Það voru þó Valsmenn sem fengu fyrsta alvöru marktækifæri leiksins. O´Carroll sendi fallega sendingu inn fyrir vörn KR þar sem Arnar Geirsson tók fallegt hlaup og komst í gegn, það var aðeins góð vörn Diogo sem varnaði marki KR þar, virkilega vel gert hjá öllum aðilum. Hraðinn var mikill í leiknum fyrsta hálftímann, sóknarspil beggja liða var gott, en það vantaði bara þetta síðasta skot á markið til að skora.
Diarmuid O´Carroll var að tengja og stýra sóknarleik Vals vel, að sama skapi var Björgólfur Takefusa hættulegur frammi hjá KR. Leikurinn jafnaðist eftir því sem á leikinn leið, KR ingar voru klaufar uppi við mark Vals, en hinum megin fengu O´Carroll og Arnar Geirsson hættuleg færi, því var ótrúlegt að markalaust væri eftir 40. mínútur. Valsmenn voru að spila hraðann og góðann sóknarbolta, en KR liðið var massíft og virkaði líklegt til að skora þegar þeir fóru upp völlinn. Valur fékk síðasta færi hálfleiksins, eftir fasta fyrirgjöf Martin Pedersen skallaði Atli Þórarinsson skalla af stuttu færi sem fór rétt framhjá.
Því var markalaust í hálfleik, þrátt fyrir fjörugan og flottan fótboltaleik.
Síðari hálfleikur hófst af sama krafti og sá fyrri, það virtist sem stærð og rígur leiksins smitaðist til leikmanna sem allir lögðu auka prósentur í sínar aðgerðir, þetta var "alvöru" leikur. Á 50. mínútu fékk Björgúlfur Takefusa besta færi leiksins til þessa, sending Kjartans Henry rataði á haus Björgólfs sem var innan við metra frá marklínu fyrir opnu marki, en setti boltann yfir, ótrúlegt klúður. Fyrsta mark leiksins kom á 55. mínútu, Óskar Örn Hauksson sendi inn fyrir, Kjartan Sturluson kom í furðulegt úthlaup, hljóp frá boltanum og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Kjartan Henry Finnbogason sem skoraði.
Strax í næstu sókn fékk KR hornspyrnu sem annað mark þeirra kom úr. Eftir klafs í teignum barst boltinn til Mark Rutgers sem þrumaði knettinum í fær samskeytin, stórglæsilegt mark. Valsmenn virkuðu slegnir og KR gekk á lagið. Óskar Örn Hauksson skoraði þriðja mark KR með þrumuskoti utan vítateigs, en spurningu verður að setja við Kjartan í marki Vals.
Og gestirnir vour ekki hættir, það féll allt með KR, tjéður Óskar Örn átti laglegann sprett upp völlinn á 64. mínútu og lét annað þrumuskot ríða af, núna var það sláin inn, stórglæsilegt mark. Staðan orðin 4-0 á um tólf mínútna kafla, lygileg staða, en á móti virtust KR einfaldlega setja í gír á meðan Valsmenn áttu engin svör.
Eftir þessa stórsókn KR róaðist leikurinn, enda Valsmenn gjörsamlega slegnir, og KR spilaði skynsaman bolta og stýrði leiknum. Valsmenn fengu hálffæri sem þeim tókst ekki að nýta og kraftleysileikmanna var sjáanlegt. Þrátt fyrir mótlætið gáfust heimamenn ekki upp, Jón Ákason minnkaði munin í 1-4 á 77. mínútu með skoti í hornið eftir fallegan sprett um miðjan völlin, en meira þurfti til að koma Val aftur í inn í leikinn. Síðustu mínútur leiksins voru jafnar, Valsmenn gerðu það sem þeir gátu til að bæta við mörkum en KR virtist róast mikið og bara gera það sem þurfti. Undir lokinn sóttu heimamenn meira, börðust alveg til síðustu mínútu, vildu væntanlega gefa allt fyrir fjölmarga stuðningsmenn sína í stúkunni, en þeim tókst ekki að bæta við marki.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í í leiknum og lokatölur 4-1 fyrir KR.
Valur: Kjartan Sturluson;Stefán Eggertsson, Atli Þórarinsson, Martin Pedersen,Rúnar Sigurjónssonsson; Haukur Sigurðsson, Ian Jeffs, Jón Ákason;Arnar Geirsson, Þórir Guðjónsson (Baldur Aðalsteinsson) ,Diarmuid O´Carroll(Guðmundur Hafsteinsson).
Varamenn: Ásgeir Magnússon, Baldur Aðalsteinsson, Matthías Guðmundsson, Einar Marteinsson, Guðmundur Hafsteinsson, Magnús Þórsson, Fannar Kolbeinsson
KR:Lars Moldskred;Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar Sigurðarsson,Mark Rutgers, Jordao Diogo(Dofri Snorrason); Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson, Óskar Hauksson, Kjartan Finnbogason, Viktor Arnarsson(Egill Jónsson);Björgólfur Takefusa
Varamenn:Þórður Ingason,Dofri Snorrason,Egill Jónsson,Auðun Gylfason,Hróar Sigurðsson,Gunnar Jónsson,Guðjón Baldvinsson
Myndir: Hilmar Þór



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook