Kylfingurinn Tiger Woods mun í dag spila í sínu fyrsta móti síðan skilnaður hans við Elin Nordegren gekk í gegn. Skilnaður hjónanna varð endanlegur í vikunni, níu mánuðum eftir að upp komst um hliðarsport Tigers í hjónabandinu.
Tiger segist í viðtali óska fyrrum konu sinni alls hins besta og tekur fram að börnin þeirra tvö muni hafa forgang í lífi þeirra beggja.
“Mér er ekki létt að skilnaðurinn sé frágenginn. Það giftir sig engin með það að markmiði að skilja síðar og þetta er því afar sorglegt,” sagði kappinn og hélt áfram.
“Það er mér að kenna að hjónabandið eyðilagðist. Ég gerði mörg mistök og verð að reyna að lifa með þessum mistökum.”
Tiger viðurkennir einnig að erfitt hafi verið að einbeita sér að golfi á þessum tímum þar sem hann hefur oftar en ekki leikið illa “Það hefur verið afar erfitt að einbeita mér í sumar,” sagði Tiger að lokum.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook