Besti maður í heimi í golfi samkvæmt heimslistanum, Tiger Woods, fór á kostum á fyrsta hring á Barclays mótinu í gær sem er fyrsta mót Fedex bikarsins í PGA mótaröðinni.
Tiger Woods var á fyrsta ráshópi í gærmorgunn í fyrsta sinn síðan hann gerðist atvinnumaður í golfi. Í fyrsta ráshóp í mótum PGA mótaraðarinnar eru yfirleitt slakari golfararnir á mótunum. Tiger Woods hefur leikið lítið í ár, svo hann var ekki á meðal stighæstu manna þegar úrslitakeppnin byrjaði í Fedex bikarnum.
Tiger lék á 65 höggum sem er sex höggum undir pari vallarins. Hann fékk sjö fugla og einn skolla á hringnum.
Gamalt og gott bros sást í dag á Tiger Woods sem margir golfáhugamenn hafa saknað.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook