Enn einu sinni fékk Mickelson tækifæri á að taka kórónuna af Tiger sem heimsins besti kylfingur og enn einu sinni mistókst honum það.
Mickelson lék á einu yfir pari á fimmtudaginn þrátt fyrir bestu aðstæður, en það var ekkert sem hann gat ekki lagað í gær á Barclays mótinu og sótt svo á toppinn um helgina.
En það gekk aldeilis ekki eftir. Mickelson byrjaði illa í gær og fékk tvo skolla á fyrstu þremur holunum og rambaði svo á milli fugla og skolla á næstu 12 holunum. Þegar hann átti 4 holur eftir var hann samtals á 1 höggi yfir pari, sem á þeim tíma var niðurskurðarlínan. Hann hefði því bara þurft að fá einn fygl til að komast áfram.
En honum var ekki ætlað að vera með um helgina því hann 8. (hans 17.) og fékk svo skramba á síðustu holuna. Og eins og sagt er: Þá var það búið.
Þetta er í annað skipti á þessu ári sem Mickelson kemst ekki gegnum niðurskurðinn.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook