Francesco Molinari er í efsta sæti á Johnnie Walker meistaramótinu aðeins einu höggi á undan bróður sínum Edoardo Molinari, en þeir eru frá Ítalíu. Francesco lék á 4 höggum undir pari í dag (68) og er samtals á 10 undir og vonast til að halda upp á öruggt sæti í Ryderliði Evrópu með sigri á morgun.
Edoardo á líka möguleika á að komast í liðið ef Monty velur hann sem er nokkuð líklegt og svo er Simon Dyson í 3. sæti á mótinu núna og getur tryggt sér sæti. Oliver Wilson Englandi, Frakkarnir Gregory Bourdy og Julien Guerrier og Stephen Gallagher Skotlandi deila 3. sætinu með Dyson, en allir eru samtals á 8 höggum undir parinu.
Molinari bræður munu því spila aftur saman í lokahollinu á móti, en þeir gerðu það um daginn á Barclays mótinu líka.
“Ég vil vinna – það eru fjögur ár síðan ég hef unnið,” sagði Francesco eftir daginn. Það er alveg ljóst að þeir bræður eiga ekkert eftir að gefa hvorum öðrum neitt á morgun.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook