Sunnudagur, 29. ágúst 2010 | Snorri Sturluson | snorri@sport.is

Eimskipsmótaröðin í golfi | Sunna vann á Hellu

Mynd: Stefán Garðarsson

Sunna Víðisdóttir GR var rétt í þessu að tryggja sér sigur á Egils-gullmótinu sem fram fer á Hellu.  Sunna, sem er á sextánda ári, lék hringina tvo á 149 höggum og vann þar með sinn fyrsta sigur á Eimskipsmótaröðinni. Jafnar í öðru sæti urðu þær Berglind Björnsdóttir GR og Nína Geirsdóttir GKj.