Nú er vika liðin síðan að Tiger og Elin fengu skilnaðinn í gegn. Og Tiger er ekkert að tvínóna við þetta heldur er hann búinn að fá sér íbúð á besta stað á Manhattan og er fluttur inn í hana. Piparsveinaíbúð á Manhattan……. Ætli þeir viti af þessu á “kynlífsmeðferðarstofnuninni” sem hann var á fyrrihluta ársins?
Eins og flestir vita var hann að spila á Barclays mótinu í New Jersey um helgina, en völlurinn sá er í um 20 km fjarlægð frá Manhattan. Gula pressan segir að sést hafi til hans vera að heilsa fólkinu í húsinu (blokkinni) og kynna sig sem “nýja nágrannann þeirra.”
Annars var Tiger með tilkynningu á heimasíðu sinni á mánudeginum eftir að skilnaðurinn rann í gegn að þau vildu halda einkalífinu frá fjölmiðlum. Kannski þarf hann að fara að átta sig á að það verður sennilega aldrei, jú hann er Tiger Woods. Og nú er hann kominn með íbúð í New York þar sem alltaf hefur verið talað um að allir fylgist vel með nágrönnum sínum.
Það eru ekki margir golfvellir þarna á svæðinu og menn að velta fyrir sér hvar hann ætli að æfa sig. Kannski verður það í Central Park.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook