Guðmundur Reynir Gunnarsson, leikmaður KR í Pepsi-deildinni, er meira til lista lagt en að hlaupa með boltann og sóla manna og annan. Hann sýndi það á móti Fylki að hann kann að skora og nú kemur það í ljós að hann er frambærilegur söngvari og lagasmiður að auki.
Mummi, eins og hann er jafnan kallaður, er að gefa út hljómdisk með lögum eftir sig. Diskurinn ber heitið Various Times In Johnny’s Life og kemur diskurinn út í næstu viku.Lögin sem eru til spilunar eru ansi góð og er greinilegt að Mummi getur valið sér framtíðarstarf sem knattspyrnumaður eða tónlistarmaður.
Hér má heyra eitt laga Mumma og er lagið nokkuð grípandi, yfir til þín Mummi.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook