Tony Pulis, stjóri Stoke, hefur gefið nýjum leikmönnum liðsins orð í eyra og sagt þeim að þeir verði að leggja jafn hart aðji sér og aðrir í liðinu til að fá að spila.
“Ég vona að nýju leikmennirnir okkar standi sig vel frá fyrsta degi og vinni jafn mikið og aðrir, annars komast þeir ekki í liðið. Þeir voru fengnir vegna hæfileika sinna og gæða, og æfi þeir vel geta þeir farið í byrjunarlið okkar og bætt liðið.
Það má segja að Eiður Guðjohnsen og Salif Diao byrji núna næstu daga lítið undirbúningstímabil til að koma sér í form, vonandi verða þeir tilbúnir fyrir leikinn gegn Aston Villa.
Vonandi veðrur Eiður komin í stand því hann er frábær leikmaður og hefur þessi auka gæði sem munu bæta lið okkar. Marc Wilson getur níst okkur mjög vel, við gerðum góða samninga þegar hann var fenginn og vonandi verður hann lengi hjá liðinu, ” sagði Pulis að lokum.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook