Miguel Angel Jiménez frá Spáni fékk viðurkenningu frá European Tour fyrir “Högg mánaðarins” í júlí. Hann sýndi fram á mikla útsjónarsemi og einstakan frumleika er hann sló boltanum sínum í vegginn á “Road Hole” á St. Andrews á The Open Championship.
Boltinn hans var í vonlausri stöðu alveg við vegginn og ekki hægt fyrir rétthentan kylfing að slá hann í átt að 17. flötinni.
En spænski snillingurinn og Ryder Cup liðsmaðurinn tók þá ákvörðun að slá boltann í vegginn og freista þess að hann myndi kastast inn að eða á flötina. Boltinn kastaðist af veggnum yfir höfuð Jiménez og inn á flötina. Snilldarhögg sem á svo sannarlega skilið að vera valið “Högg mánaðarins.”




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook