Valur tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu kvenna eftir stórsigur á Aftureldingu, 8-1, í Mosfellsbæ. Heimastúlkur skoruðu strax eftir hálfa mínútu en tveimur mínútum síðar jöfnuðu Valsstúlkur, og bættu svo sjö mörkum við.
Tap Breiðabliks í dag gerir það að verkum að sjö stigum munar á Val og Blikastúlkum þegar aðeins sex stig eru í pottinum, og því er Valur Íslands- og bikarmeistari annað árið í röð. Titillinn sem Valsstúlkur tryggðu sér í dag markar einnig tímamót í sögu Vals, því þetta er eitt hundraðasti meistaratitillinn sem fellur Hlíðarendaliðinu í skaut.
Úrslit dagsins í Pepsi-deild kvenna:
Afturelding 1 – 8 Valur
FH 3 -2 Breiðablik
Stjarnan 3 – 2 Þór/KA
KR 1 – 1 Fylkir
Grindavík 2 -2 Haukar





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook