Sunnudagur, 5. september 2010 | Hans Guðmundsson | hans@igolf.is

Sissó sleit liðbönd og missir af KPMG bikarnum

Mynd: iGolf.is

Sigurþór Jónsson afrekskylfingur úr GK var að hjálpa vini sínum að flytja á miðvikudagskvöldið og var að hlaupa niður stiga  þegar hann missteig sig illilega. Liðbönd slitnuðu í ökkla með tilheyrandi blæðingum og verður hann frá golfiðkun í langan tíma vegna þessa.

Í fyrstu töldu læknar að hann væri brotinn, en svo er ekki, en læknar settu gipsi um fótinn og verður hann með það í um mánuð og má hann ekki stíga í löppina á þeim tíma. Sissó keppir því ekki með liði landsbyggðarinnar í KPMG bikarnum, en hann verður á hliðarlínunni og veitir allan þann móralska stuðning sem hann getur með Gylfa liðsstjóra.