Zach Nash fékk áfall þegar hann komst að því að hann var með 15 kylfur í pokanum sínum eftir að hafa sigrað á unglingamóti í Wisconsin.
En reglur eru reglur og hinn 14 ára gamli Nash tók strax ákvörðun, sem allir hefðu kannski ekki gert: Hann dæmdi sjálfan sig úr leik og skilaði gull verðlaunapening sínum.
“Ég vissi strax að ég gæti ekki lifað með sjálfum mér ef ég héldi verðlaunapeningnum svo það var ekkert annað að gera,” sagði hann.
Nash lék á 77 höggum og sigraði í flokki 13 – 14 ára á Milwauke County Parks Tour, sem var haldið af Wisconsin PGA, en þátttakendur voru 32 í aldursflokknum og meðal áhorfenda voru amma hans og afi.
“Ég var að sýna öllum verðlaunapeninginn minn og þeirra á meðal Chris Wood læriföður mínum,” heldur Nash áfram. “Wood spyr mig þá: Hver á þessa kylfu? Og ég svaraði: Vinur minn á hana. ‘Það gerir þá 15 kylfur í pokanum’ sagði Wood þá.”
Vinur Nash sem spilar stundum golf með honum hafði gist hjá Nash rétt fyrir mótið og hann hafi gleymt tré-fimmu heima hjá honum. Nash hafi því sett hana í pokann sinn til að geta látið hann hafa hana næst er þeir hittust á golfvellinum.
Wood lærifaðir Nash og yfirþjálfarinn í golfklúbbnum hans segir að klúbburinn sé stoltur af framgöngu Nash í þessu máli.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook