Mánudagur, 6. september 2010 | Snorri Sturluson | snorri@sport.is

Bebe er í Meistaradeildarhópnum eftir allt saman

Mynd: Nordic Photos

Í ljós hefur komið að portúgalski huldumaðurinn Bebe er einn þeirra 25 leikmanna sem forráðamenn Manchester United skráðu til leiks í fyrri hluta Meistaradeildar Evrópu í vetur, en fyrstu fregnir hermdu að framherjinn fáséði hefði ekki hlotið náð fyrir augum knattspyrnustjórans, Sir Alex Ferguson.  Owen Hargreaves er hins vegar fjarri góðu gamni, enda boginn og beygður af völdum meiðsla.

Bebe og Hargreaves eru báðir í hópi þeirra 25 leikmanna sem Manchester United skráði til leiks í ensku úrvalsdeildinni í vetur, meiðslavandræði Hargreaves eru slík að það kom fáum á óvart að hann skyldi skilinn útundan þegar kom að skráningunni í Meistaradeildina en hins vegar áttu flestir von á því að sjá Bebe þar.  Hann var hins vegar ekki á fyrsta leikmannalistanum sem birtur var, en hefur nú skotið þar upp kollinum og er staðfestur af UEFA, hann er sannanlega í leikmannahópi Manchester United fyrir Meistaradeildina.