Mánudagur, 6. september 2010 | Ragnar Vignir | ragnar@sport.is

Enski boltinn | Bobby Zamora í samningsviðræðum við Fulham

Mynd: NordicPhotos

Bobby Zamora, framherji Fulham, er í viðræðum við félagið um nýjan samning. Slíkur samningur myndi verða sá verðmætasti sem félagið hefur gert við nokkurn leikmann.   Vitað var af áhuga liða eins og Liverpool á leikmanninum og því hóf Fulham fljótlega viðræður við Zamora.

Mark Bowen, aðstoðarknattspyrnustjóri liðsins staðfesti þetta í samtali við skysports fréttastofuna. “Bobby og Fulham hafa átt í viðræðum um nýjan samning í langan tíma, þær hófust áður en ég og Mark Hughes komum til Fulham.

Að því er ég best veit þá ganga viðræður vel og vonandi veður Zamora hjá liðinu í langann tíma,” bætti Bowen við.

Bobby Zamora hefur leikið vel með Fulham undanfarin ár og verið orðaður við enska landsliðið vegna frammistöðu sinnar með liðinu.