Mánudagur, 6. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Friedel og Warnock óánægðir með mögulega ráðningu Houlliers

Mynd: NordicPhotos

Tveir leikmenn Aston Villa, markvörðurinn Brad Friedel og varnarmaðurinn Stephen Warnock, hafa látið óánægju sína í ljós með það að Gerard Houllier gæti hugsanlega orðið næsti stjóri þeirra á Villa Park.  Leikmennirnir léku báðir undir stjórn Houllier hjá Liverpool, Frakkinn seldi reyndar Friedel til Blackburn Rovers árið 1999 og Warnock var lánaður til Coventry.

Þegar það fréttist að Houllier væri líklega að taka við Aston Villa fór það frekar illa í þessa tvo leikmenn. Maður getur skilið þessa tilfinningu sem kemur upp hjá leikmönnunum. Friedel segist ekki einu sinni hafa fengið tækifæri til að kynnast Houllier á neinn hátt á meðan hann var á Anfield,“ sagði talsmaður Aston Villa við News of the World í gær.

Gerard Houllier var sem kunnugt um á Englandi um helgina þar sem hann var viðstaddur góðgerðarleik Jamie Carragher í Liverpool og ræddi hann við Villa-menn í síðustu viku.