Ottmar Hitzfeld, landsliðsþjálfari Sviss í knattspyrnu, upplýsti í gær að hann hefði hafnað tilboði frá Manchester United um að verða næsti knattspyrnustjóri þess þegar sjálfur Sir Alex Ferguson hugðist setjast í helgan stein, eftir tímabilið 2001-02. Hitzfeld þjálfaði þá Bayern Munchen í þýsku deildinni.
Enska blaðið Telegraph spurði hann út í þetta og hafði hann þetta að segja, “Ég vil ekki ræða þetta í smáatriðum, því þetta var á milli mín og Manchester United en ég ákvað að vera áfram í Þýskalandi á þessum tíma. Þegar ég þjálfa vil ég geta tjáð mig á þýsku, því það er móðurmálið mitt,“ sagði Hitzfeld.
Hitzfeld mun stýra Svisslendingum á móti Englendingum í Basel í Svissí kvöld og mun að sjálfsögðu geta hvatt sína menn áfram á þýsku.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook