Miðvikudagur, 8. september 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Arsenal bíður fregna um Walcott

Mynd: Nordic Photos

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, bíður spenntur eftir að heyra hversu alvarleg meisðli Theo Walcott séu en hann fór meiddur af velli í leik Englands og Sviss í gær. Walcott var borinn útaf og var ökklinn á honum vafinn. Svo virtist sem Walcott væri sárþjáður en það kemur í ljós í dag hversu lengi hann verður frá keppni vegna meiðslanna.

Walcott hefur staðið sig vel með Arsenal á tímabilinu. Liðið var að missa Robin van Persie í 6-8 vikur vegna meiðsla og það myndi ekki vera góð tíðindi fyrir Arsenal ef Walcott yrði einnig lengi frá.