Frakkinn Gérard Houllier mun að öllu óbreyttu taka við liði Aston Villa en hann hefur samþykkt þriggja ára samning við félagið. Það eina sem á eftir að gera er að skrifa undir samninginn og því má segja að þetta sé frágengið. Houllier þjálfaði á sínum tíma Liverpool en undir hans stjórn vann liðið enska bikarinn, enska deildarbikarinn og UEFA-bikarinn.
Fyrsti leikir Aston Villa undir hans stjórn verður gegn Stoke en Eiður Smári ætti að koma við sögu í þeim leik sem leikmaður Stoke.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook