Miðvikudagur, 8. september 2010 | Ragnheiður Jónsdóttir | ragnheidur@igolf.is

Lorena Ochoa nýtur lífsins

Mynd: iGolf.is

Lorena Ochoa vill ekki að mikið sé gert úr danstímunum sem hún tók fyrir skemmstu.  Hún mun ekki sýna fleiri meringue spor í “Dancing with the Stars” (bandarískur sjónvarpsþáttur) á næstunni. Hún skemmtir sér konunglega með vinum sínum í Mexico City og eyðir tímanum í allt nema golf.

Að vísu tók hún þátt í góðgerðargolfmóti Notah Begay (vinur Tigers frá því í háskóla) og var það fyrsti golfhringur hennar frá því í Morelia s.l. apríl. Hún hefir unnið að bók sinni, í fyrirtæki sínu og heimili. Hún ferðaðist með eiginmanni sínum, Andres Conesa, vegna funda hans fyrir  AeroMexico. Hún hefir eytt tímanum í að vera eiginkona og stjúpmóðir.

“Það er merkilegt hversu mikið ég hafði fyrir stafni,” sagði hún.

Ochoa var ánægð með golfhring sinn með Begay. Þau spiluðu betri bolta og fengu 4 fugla, en í holli með henni var fyrrum keppinautur hennar, Annika Sörenstam og sagði Ocoho að skemmtilegt hefði verið að spila golf, golfsins vegna, án allrar pressu.

“Nú gátum við bara hlegið að slæmu höggunum okkar,” sagði Ochoa.

En nú er Lorena Ochoa Invitational á dagskránni í nóvember n.k. og Lorena ætlar að byrja að æfa nokkra klst. á dag til þess að búa sig undir það.  Sveifluþjálfari hennar, Rafael Alarcon, mun fljúga stuttu vegalengdina frá Guadalajara til þess að hjálpa henni að komast í form. Kennslustundirnar verða ekki strangar. Lorena mun æfa skv. eigin dagskrá og taka sér frí á milli þegar henni langar til.

“Á hverjum degi verður mér ljósara að ég hef tekið réttu ákvörðunina,” sagði Lorena. “Allir þessir litlu hlutir (sem ég er að gera), gera mig hamingjusama. Að vaka langt fram eftir, fara út með vinum mínum og eiga helgarfrí. Frábært!!!”