Miðvikudagur, 8. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Pavin búinn að velja í bandaríska landsliðið

Mynd: Nordic Photos

Fyrirliði bandaríska úrvalsliðsins í golfi, Corey Pavin, valdi í dag fjóra kylfinga í liðið sitt sem mætir Evrópu í Ryderkepnninni í byrjum október. Liðið er nú fullskipað 12 mönnum og fer mótið fer fram í Wales. Pavin valdi sjálfan Tiger Woods, Stewart Cink, Zach Johnson og Rickie Fowler. Þetta er í fimmta sinn sem Tiger Woods keppir með liðinu, fjórða skiptið hjá Cink og annað skiptið hjá Johnson. Í liði Bandaríkjamanna er Phil Mickelson að taka þátt í níunda sinn a þessu móti, Furyk hefur sex sinnum tekið þátt og Mahan og Stricker voru með á síðasta móti.

Bandaríska liðið er skipað eftirfarandi:
Phil Mickelson, Hunter Mahan, Bubba Watson, Rickie Fowler, Jim Furyk, Zach Johnson, Steve Stricker, Steward Cink, Dustin Johnson, Tiger Woods og Matt Kuchar. Watson,Johnson, Kuchar og Overton eru allir nýliðar.

Colin Mongomerie er fyrirliði Evrópuliðsins sem er skipað eftirfarandi:
Lee Westwood frá Englandi, Edoardo Molinari frá Ítalíu, Padraig Harrington frá Írlandi, Francesco Molinari frá Ítalíu, Luke Donalds frá Englandi, Peter Hanson frá Svíþjóð, Ian Poulter frá Englandi, Ross Fisher frá Englandi, Lee Westwood frá Englandi, Rory Mcllroy frá Norður-Írlandi, Miguel Angel Jiminez frá Spáni, Graeme McDowell frá Norður-Írlandi og Martin Kaymer frá Þýskalandi.