Miðvikudagur, 10. mars 2010 | Anton Ingi Leifsson | anton@sport.is

Beckham: “Stuðningsmennirnir eru ótrúlegir”

Mynd: Nordic Photos

David Beckham, miðjumaður AC Milan, var ánægður með hvernig stuðningsmenn Manchester United tóku á móti honum í kvöld er hann sneri aftur á Old Trafford. Milan steinlá í kvöld gegn United, 0-4.

Leikurinn var sérstakur fyrir Beckham fyrir þær sakir að hann var að leika í fyrsta sinn gegn United síðan hann yfirgaf herbúðir félagsins árið 2003.  Hann var sáttur við stuðningsmenn United.

Það sem ég mun taka úr þessum leik er hvernig stuðningsmennirnir tóku á móti mér, þetta var ótrúlegt,” sagði Beckham himinlifandi með móttökurnar. Hann væri til í að sjá United fara alla leið.

Ég vona að þeir fari alla leið aftur. Þeir eiga það skilið, þetta er frábær klúbbur, frábærir stuðningsmenn og frábær þjálfari. Þeir hafa allt til þess að fara alla leið,” sagði Beckham.

Hann er einn af þeim bestu ef ekki sá besti á þessum tímapunkti”, sagði Beckham þegar hann var spurður út í frammistöðu Wayne Rooney, sem skoraði tvö mörk í leiknum. “Wayne er ákafur og vill læra, hann er ungur.”

Varnarmennirnir hræðast hann. Hitt liðið þarf alltaf að hafa áhyggjur, öll lið og allir leikmenn.”

Það er alltaf leiðinlegt þegar þú tapar leikjum, sérstaklega þegar leikurinn er mikilvægur. En við mættum gríðarsterku liði United í dag,” sagði David Beckham í samtali við SkySports.

  • Facebook
  • Twitter
  • StumbleUpon
  • Digg
  • del.icio.us
  • email