Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United var hæstánægður með sigur sinna manna gegn AC Milan í kvöld. Ferguson sagði að leiknum hafi í raun verið lokið þegar Wayne Rooney skoraði annað mark United í leiknum.
“Frammistaðan í seinni hálfleik var stórkostleg”.
“Það hafði áhrif á Milan þegar við skoruðum annað markið, eftir það lékum við virkilega vel”.
“Þegar við leikum á þessum hraða er mjög erfitt að leika gegn okkur þetta var spilamennska í Manchester United klassa”.
Spurður um frammistöðu Rooney sem skoraði sitt 30. mark á tímabilinu sagði hann:
“Ég var ánægður með að hann náði 30. markinu og ef ég á að vera hreinskilinn þá verður hann einfaldlega betri og betri, hann var hreint magnaður í kvöld”.
Ferguson gaf Kóreubúanum Ji Sung Park einnig sérstakt hrós.
“Park færði fórnir í kvöld, en hann sýndi mikil klókindi og aga. Hann gerði það sem þurfti til að stöðva Andrea Pirlo”.
Og hverjum vill Ferguson helst mæta í átta liða úrslitum?
“Það skiptir engu máli hverjum við mætum á meðan við spilum eins og við gerðum í kvöld”.











Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook