Manchester United tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með því að rúlla yfir Milan, 4-0, í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitunum og Englandsmeistararnir höfðu því betur í rimmunni samanlagt 7-2. Lyon gerði sér svo lítið fyrir og sló út milljarðalið Real Madrid; liðin gerðu jafntefli á Santiago Bernabeu í kvöld, 1-1, og Lyon vann því samanlagt 2-1.
Wayne Rooney virðist varla geta reimað á sig takkaskó þessa dagana án þess að salla inn mörkum, hann skallaði boltann í netið eftir glimrandi fína sendingu Gary Neville á 13.mínútu og staðan í leikhléi var 1-0. Rooney bætti við öðru marki strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks eftir frábæran undirbúning og sendingu Nani og Ji-Sung Park gerði út um vonir Milan-manna þegar hann kom Manchester United í 3-0 á 59.mínútu. Darren Fletcher skoraði fjórða og síðasta mark heimamanna með skalla eftir sendingu Rafael á 87.mínútu. 4-0 fyrir United, sem var vel að sigrinum að komið, en Englandsmeistararnir höfðu betur gegn Milan 7-2 samanlagt.
Lyon heimsótti stjörnum prýtt lið Real Madrid í kvöld, Lyon hafði betur í fyrri leiknum 1-0 og Madridingar ætluðu sér að komast upp úr 16-liða úrslitunum í fyrsta sinn í 16 ár. Cristiano Ronaldo kom Real yfir strax á 6.mínútu, en Frakkarnir létu ekki deigan síga. Miralem Pjanic jafnaði metin fyrir Lyon á 75.mínútu og fékk ágæt færi á að bæta við mörkum á lokamínútunum, Madridingar lögðu þá ofurherslu á sóknarleikinn og virtust ekki hafa miklar áhyggjur af vörninni sinni. Lokatölur urðu 1-1, sem þýðir að Lyon hafði betur í rimmunni gegn Real Madrid 2-1 samanlagt.
Enn einu sinni mistekst milljarðaliði Real Madrid að komast í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu og nú hlýtur að vera útséð með það að velgengni er ekki hægt að kaupa.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook