Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Real Madrid var skiljanlega svekktur með leikinn gegn Lyon í meistaradeildinni í kvöld þar sem spænska stórliðið féll úr leik.
“Ég tel mig að hluta til ábyrgan fyrir tapinu. Við verðum að komast yfir þessi vonbrigði og halda áfram að berjast um titilinn í deildinni heimafyrir. Framtíð mín með liðið stendur og fellur með því að við náum árangri þar” sagði Pellegrini.
Guti, leikmaður liðsins gat heldur ekki leynt vonbrigðum sínum eftir leikinn. ” Við náðum ekki að spila sem lið. Það hefur oft verið vandamál hjá okkur þegar við mætum stærstu liðunum. Þetta er einnig svekkjandi í ljósi þess að úrslitaleikurinn verður leikinn á heimavelli okkar, Santiago Bernabeu og hefðum við viljað taka þátt í leiknum. Nú verðum við bara að einbeita okkur að deildinni.”











Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook