Clarence Seedorf, miðjumaður AC Milan, hlakkar mikið til að mæta Manchester United í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Liðin mætast í síðari leiknum í kvöld eins og fyrr segir, en leikið verður á Old Trafford.
“Ef við vinnum á Old Trafford og sláum Manchester United út þá verðum við að spila okkar besta leik,” sagði Hollendingurinn við Sky Sports.
“Fyrir mig sjálfan, ef við vinnum verður það ein af stærstu stundum á mínum knattspyrnuferli.”
“Ég hef spilað marga leiki þegar við verðum að skora, en á síðustu dögum hef ég sé ákveðna uppbyggingu í liðinu.”
Seedorf segir að þessi leikur sé eins og úrslitaleikur fyrir Milan: “Leikurinn verður opin og mikil ákefð, en það er gott. Fyrir okkur er þetta eins og úrslitaleikur Meistaradeildarinnar.”
“Sigur á þessum velli væri frábært og ég vona að við fáum að fagna einu sinni í viðbót,” sagði Seedorf að lokum.
Alexandre Pato og Alessandro Nesta, leikmenn AC Milan, eru báðir tæpir fyrir leikinn og Milan menn þurfa að setja allt í sókn í leiknum því Milan tapaði fyrri leiknum 3-2.











Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook