Föstudagur, 12. mars 2010 | Snorri Sturluson | snorri@sport.is

Brunaútsala í Madrid?

Mynd: Nordic Photos

Milljarðalið Real Madrid er sem kunnugt er úr leik í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu og og forráðamenn félagsins eru sagðir ætla að grípa til nokkuð róttækra aðgerða.  Madridingar ætla enn að láta reyna á þá speki að hægt sé að kaupa titla, fjölmargir sterkir leikmenn verða því seldir, jafnvel á gjafvirði, og aðrir, líklegri til afreka, keyptir í staðinn.  Telja má nokkuð víst að ítölsk lið njóti góðs af fyrirhugaðri útsölu á Santiago Bernabeu.

Sá sem fyrstur er nefndur til sögunnar þegar kemur að vangaveltum um leikmenn sem yfirgefa herbúðir Real Madrid er undantekningalítið Karim nokkur Benzema.  Benzema virtist vera kominn með annan fótinn til Milan í fyrravor, en þá kom risatilboð frá Real Madrid sem kjánalegt hefði verið að hafna.  Frakkinn ungi þiggur aukinheldur kjánalega há laun, en afrek hans á knattspyrnuvellinum hafa vart verið til frásagnar.  Benzema hefur aðeins skorað fimm mörk í vetur, hefur verið gagnrýndur fyrir leti og áhugaleysi og verður nær örugglega seldur á vormánuðum.  Líklegasti áfangastaður hans er San Siro, en Milan-menn bráðvantar frískan framherja og líklega þurfa þeir aðeins að borga brotabrot þeirra 35 milljóna evra sem Benzema kostaði Real Madrid.

Gonzalo Higuain hefur átt ágætu gengi að fagna hjá Real, hann hefur verið býsna iðinn við markaskorun og nýtur vinsælda, en þó er ekki loku fyrir það skotið að hann hverfi á braut.  Higuain hefur þráfaldlega hafnað samningstilboðum Madridinga, hann ku vera ósáttur við launalið nýs samnings, auk þess sem goggunarröðin á Santiago Bernabeu er eitthvað að þvælast fyrir honum.  Juventus og Inter eru sögð afar áhugasöm um að fá Argentínumanninn snjalla til liðs við sig og þykir Inter líklegra til afreka.

Hollenski miðjuamaðurinn Rafael Van der Vaart er nær örugglega á förum.  Hann ákvað í fyrravor að berjast fyrir sæti sínu í liði Real á sama tíma og landar hans Wesley Sneijder og Klaas-Jan Huntelaar fluttu sig yfir til Ítalíu, en margt fer öðruvísi en ætlað er.  Milan og Juventus koma væntanlega til með að bjóða hann velkominn; hermt er að Juventus hafi verið hársbreidd frá því að kaupa hann i janúar og að forráðamenn félagsins ætli ekki að láta hann sér greipum ganga öðru sinni.

Fleiri ágætir knattspyrnumenn gætu verið á förum frá Madrid.  Royston Drenthe er orðaður við Fiorentina, Lassana Diarra er ofarlega á óskalista Laurent Blanc hjá Bordeaux og Fernando Gago hefur vakið áhuga forráðamanna Manchester City og Inter.