Florent Malouda, leikmaður Chelsea, segir að liðið verði að byrja leikinn vel gegn Inter á morgun. Leikurinn er í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en Inter leiðir einvígið 2-1.
“Við þurfum að byrja leikinn betur enn við gerum á San Siro,” sagði Frakkinn við heimasíðu Chelsea. “Við höfum horft á aðra leiki í Meistaradeildinni og okkur langar í átta liða úrslitin. Við ætlum að gera okkur besta til að komast áfram og okkar besta á eftir að koma.”
“Það er enn möguleiki á að vinna þrjá titla svo núna er okkar tími til að sýna hæfileika okkar. Við erum ekki að velja hvaða keppni við viljum vinna, við viljum vinna allt.”
Malouda hefur þurft að spila í bakverðinum á tímabilinu vegna meiðsla. Hann segir að hann hafi auðvitað gert sitt besta “Mín uppáhalds staða er klárlega vinstri kantur og sækja en á síðustu vikum hef ég þurft að spila vinstri bakvörð vegna meiðsla og það var ekki vandamál fyrir mig. Ég gerði bara mitt besta,” sagði Malouda að lokum.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook