Þriðjudagur, 16. mars 2010 | Þorsteinn Haukur Harðarson | thorsteinn@sport.is

Mourinho: “Vorum miklu betri”

Mynd: Nordic Photos

Jose Mourinho þjálfari Inter var að vonum mjög ánægður með sigur sinna manna gegn fyrrum lærisveinum sínum í Chelsea í kvöld. Með sigrinum er Inter komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

“Við vorum einfaldlega mikið betri í leiknum” sagði Mourinho eftir leikinn og hélt áfram “Chelsea er frábært lið og það vita allir. Við mættum hinsvegar vel undirbúnir til leiks og uppskerum eftir því.”

Mourinho yfirgaf völlinn áður en leiknum lauk og fagnaði því ekki út á grasi með liðinu. “Ég fagnaði vel inn í búningsklefa eftir leik.” Að lokum bar stjórinn enska liðinu góða söguna “Ég elska Chelsea og leikvanginn þeirra og fólkið í kringum félagið” sagði Mourinho að lokum.

  • Facebook
  • Twitter
  • StumbleUpon
  • Digg
  • del.icio.us
  • email