Miðvikudagur, 17. mars 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Lengjubikarinn: Keflavík fór létt með Breiðablik

Keflavík og Breiðablik mættust í kvöld í riðli þrjú í Lengjubikar karla í knattspyrnu. Breiðablik hafði fyrir leikinn unnið alla fjóra leiki í sína og sátu á toppi riðilsins með tólf stig. Keflvíkingar töpuðu gegn KR en höfðu unnið fyrstu tvo. Það mátti því búast við spennandi leik. 

Sú varð nú aldeilis ekki raunin. Eftir rólegan fyrri hálfleik fóru Keflvíkingar í gang og hreinlega yfirspiluðu Blika í síðari hálfleik og unnu sannfærandi sigur 3-0. Magnús Þórir Matthíasson gerði tvö mörk og nýliðinn Ómar Karl Sigurðsson gerði eitt. Landsliðsmaðurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson leikmaður Blika fékk að líta reisupassann á 60. mínútu og félagi hans Elfar Freyr Helgason fór sömu leið fimmtán mínútum síðar.

Ómar og Andri Steinn | Mynd: Keflavík.is

Þetta eru aðrar góðu fréttirinar fyrir Keflvíkinga á stuttum tíma því í gær gengu tveir leikmenn til liðs við félagið. Það voru þeir Andri Steinn Birgison sem kemur frá Fjölni og markaskorarinn og fyrrum Haukarinn Ómar Karl Sigurðsson sem kemur frá norska liðinu Mandalskameratene. Það er ljóst að koma þessara leikmanna mun styrkja liðið mikið.

Breiðablik er þrátt fyrir tapið í efsta sæti riðilsins með tólf stig eftir fimm leiki. ÍBV kemur næst með tíu stig eftir sex leiki. KR hefur unnið alla þrjá leiki sína og eru í þriðja sæti með níu stig. Keflvíkingar hafa leikið fjóra leiki og unnið þrjá og eru því einnig með níu stig. Reikna má með því að þessi lið muni berjast um að komast í átta liða úrslit keppninnar.