Föstudagur, 19. mars 2010 | Þorsteinn Haukur Harðarson | thorsteinn@sport.is

William Gallas ekki með í næstu leikjum Arsenal

Mynd: NordicPhotos

William Gallas, leikmaður Arsenal mun að öllum líkindum missa af fyrri leik liðsins gegn Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þann 31.mars næstkomandi. Franski varnarmaðurinn hefur verið frá keppni í rúman mánuð, eða síðan í byrjun Febrúar vegna meiðsla í kálfa og mun hann missa af næstu tveimur deildarleikjum liðsins, gegn West Ham og Birmingham.

Arsene Wenger, stjóri félagsins ræddi málin við opinbera heimasíðu liðsins. “Ég vona að hann spili aftur sem fyrst en þetta lítur ekki vel út núna. Hann mun að öllum líkindum spila áður en tímabilið klárast en ég tel 80% líkur á að hann missi af fyrri leiknum gegn Barcelona” sagði Wenger.