Laugardagur, 20. mars 2010 | Anton Ingi Leifsson | anton@sport.is

O’Neill: ,,Milner verðskuldar nýjan samning”

Mynd: NordicPhotos

Martin O’Neill, stjóri Aston Villa, segir að vængmaður sinn hjá félaginu, James Milner, verðskuldi nýjan samning.

Milner skrifaði undir fjögurra ára samning sumarið 2008 þegar hann kom til félagsins. Þessi fyrrum leikmaður Leeds og Newcastle hefur verið magnaður á tímabilinu og á góðan möguleika að vera valin í enska landsliðið fyrir HM í S-Afríku.

Ég hef sagt við James í nokkra mánuði að við munum setjast niður með honum í sumar og ræða nýjan samning, hvort sem  hann fer á HM eða fer ekki,” sagði O’Neill.

Hann er búin að spila það vel að við setjumst niður í sumar. Við erum ekki að fara setjast niður með honum bara afþví hann er kannski að fara á HM, heldur launa honum fyrir það sem hann hefur gert fyrir okkur í gegnum tíðina.”

Aston Villa mætir Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag, en vinni liðið á það möguleika að skjótast upp í fimmta sætið, um stund að minnsta kosti.