Haukar tóku á móti Grindavík í botnbaráttuslag Pepsí-deildar kvenna nú í kvöld. Mikil harka var í leiknum og fékk einungis eitt mark að líta dagsins ljós. Það mark skoraði Grindavík sem vann mikilvægan útisigur. Haukar eru hinsvegar komnir í vandræði.
Leikur Hauka og Grindavíkur fór rólega af stað og gekk liðunum illa að skapa sér færi í leiknum. Meiri harka var þó í leiknum en gengur og gerist í kvennabolta og engu líkara en að tvö fjandlið væru að mætast. Þær Kristín Karlsdóttir í lið Grindavíkur og Sara Jordan í liði Hauka þurftu til að mynda að fara af velli í leiknum vegna meiðsla eftir tæklingu. Fyrsta mark leiksins kom eftir rúmlega hálftíma leik og var af dýrari gerðinni. Þá fékk Rachel Furness, leikmaður Grindavíkur boltann fyrir utan teig, lét vaða á markið og skoraði glæsilega. Sóknarmenn á HM í Suður Afríku hingað til mega taka Rachel sér til fyrirmyndar. Staðan í hálfleik 0-1 fyrir Gestunum úr Grindavík.
Haukaliðið pressaði meira í síðari hálfleik og voru líklegri til þess að skora. Harkan hélt áfram. Þrátt fyrir nokkur færi í hálfleiknum var ekkert mark skorað og lokatölur því 1-0 fyrir Grindavík. Salih Heimir Porca, þjálfari Hauka fær svo falleinkunn fyrir hegðun sína í leikslok þegar hann sagðist hafa þarfari hluti að gera en að fara í viðtöl við fjölmiðlamenn. Ekki var þessi hegðun hans til að ýta undir góða umfjöllun um kvennaknattspyrnu.
Myndir: Björgvin Óskarsson.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook