Þór vann öruggan 3-0 sigur á KA í leik liðanna í 1.deild karla í kvöld. Sigurinn var aldrei í hættu en Þór komst yfir í leiknum strax á 5.mínútu með marki frá Atla Sigurjónssyni. Á 24. mínútu var Þorsteinn Ingason á skotskónum en hann kom Þórsurum í 2-0 með laglegu marki. Seinasta mark leiksins kom á 71. mínútu en það var Sigurður Marínó Kristjánsson sem skoraði það og tryggði Þór öruggum sigri.
Þór er því komið á toppinn í 1.deildinni eftir sigurinn en liðið er með 40 stig en Víkingur Reykjavík og Leiknir eru með 39 stig.
KA-menn eru í 7.sætinu með 24 stig.
Þór 3 – 0 KA
1-0 Atli Sigurjónsson 3.mín.
2-0 Þorsteinn Ingason 24.mín.
3-0 Sigurður Marinó Kristjánsson 71.mín.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook