Það má segja að það sé að verða breytingar á íslenska landsliðinu en Sölvi Geir Ottesen, leikmaður FC Kaupmannahafnar, verður fyrirliði liðsins á morgun. Hingað til hafa leikmenn eins og Eiður Smári Guðjohnsen, Hermann Hreiðarsson og Heiðar Helguson borið fyrirliðabandið en Sölvi ber það í leiknum á morgun.
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, er að gera miklar breytingar á liðinu en margir ungir leikmenn leika í næstu leikjum og má segja að þeir séu að taka við keflinu af þeim eldri.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook