Norska dagblaðið Aftonbladet segir Rúnar Kristinsson hafa verið að taka upp æfingu norska landsliðsins í dag en liðið æfði á Laugardalsvelli. Rúnar segir þetta ekki rétt en hann hafi einungis fylgst með æfingunni fyrir Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara. Norska knattspyrnusambandið er ekki að stressa sig á þessum fréttum og ætla ekki að skoða málið.
Rúnar sló á létta strengi þegar þetta var borið upp við hann en hann stóð hjá sjónvarpsupptökuvél þegar hann horfði á æfinguna og sagði hann ekki eiga svo stóra myndbandsupptökuvél.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook