Fimmtudagur, 2. september 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Gylfi Þór Sigurðsson: Þetta er klárlega skref upp á við

Mynd: Hoffenheim

Undanfarnir dagar hafa verið viðburðaríkir í lífi Gylfa Þórs Sigurðssonar, en hann gekk sem kunnugt er frá félagaskiptum frá Reading á Englandi til Hoffenheim í Þýskalandi. Gylfi er mikils metinn, enda aðeins tæplega 21 árs og því er langur ferill framundan hjá honum á knattspyrnuvellinum.

Gylfi var valinn í A-landsliðið eftir að hafa staðið sig frábærlega með U-21 liðinu sem m.a. burstaði þýska landsliðið 4-1 á dögunum. Hann mun vafalaust leika stórt hlutverk með liðinu í framtíðinni enda er hann þekktur fyrir að hlífa sér ekki á vellinum og berjast ávallt eins og ljón fyrir samherja sína.

Við tókum Gylfa tali og fengum að vita um leikina gegn Norðmönnum og Dönum og lífið sem framundan er í Þýskalandi.

Hvernig leggst leikurinn gegn Noregi í þig?
“Hann leggst mjög vel í mig og mjög vel í allan hópinn, það er fín stemning hérna og við getum ekki beðið eftir föstudeginum.”

Hvernig meturðu norska liðið, hverhur eru veikleikar og styrkleikar þess?
“Þeir eru bæði með nokkra veikleika og styrkleika sem við vitum um, við þurfum svo bara að nýta okkur það. Þeir eru sterkir leikmenn og spila svolítið “direct” svo við þurfum að vinna fyrsta og seinni boltann.”

Mynd: NordicPhotos

Hvaða leikmenn norska liðsins þarf íslenska liðið að varast?
“Það eru nokkrir leikmenn sem flestir þekkja hérna úr enska boltanum, Gamst Pedersen, Carew sem verður reyndar ekki með og svo er Hangeland frá Fulham þarna í miðverðinum svo þeir eru með fínt lið.”

Hvað þarf Ísland að gera til að loka á sóknarleik norska liðsins.
“Við þurfum bara að vera þéttir og vinna saman þegar þeir eru með boltann, ef við lokum á það sem þeir leggja oftast upp með í sínum sóknarleik held ég að þetta eigi eftir að verða góður leikur hjá okkur og vonandi jákvæð úrslit.”

Nú er búið að yngja hressilega upp í íslenska liðinu. Heldurðu að það eigi eftir að skila ferskari leik?
“Vonandi á það eftir að gerast. Það eru margir leikmenn hérna í hópnum núna sem hafa verið að spila með U-21 árs liðinu síðustu ár og við erum allir hungraðir í að standa okkur hérna í A-landsliðinu og vinna okkur sæti í liðinu.”

En leikurinn gegn Dönum, Hvernig líst þér á hina dönsku frændur okkar?
“Hann legst vel í mig, við erum aðallega bara búnir að vera einbeita okkur að næsta leik sem er við Norðmenn. Strax eftir leikinn á móti þeim snúum við okkur að Dönum og förum að hugsa um þann leik.”

Aðeins um þig. Hoffenheim, hvernig kom það til og hvernig leggst það í þig?
“Það gerðist mjög hratt, Það leggst mjög vel í mig, enda er þetta sterkur klúbbur með eina bestu æfingaaðstöðu sem ég hef séð, völlurinn er líka frábær, aðeins ársgamall, og tekur um 32 þúsund manns. Þeir eru í einni sterkustu deild í heimi og eiga ágæta möguleiki á Evrópukeppninni á næsta ári ef allt gengur upp í vetur.”

Mynd: Nordic Photos

Líturðu á Hoffenheim sem eitt skref á ferli þínum. Stefnirðu enn hærra?
“Já þetta er klárlega skref á upp á við, enda er þýska Bundesligan talin vera þriðja sterkasta deild í heimi og eins og ég sagði þá þá á liðið ágæta möguleika að spila í Evrópukeppninni á næsta ári.”