Fimmtudagur, 2. september 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Matthías Vilhjálmsson: Erum ekki með lélegra lið en Noregur

Mynd: Hilmar Þór

Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH og leikmaður íslenska landsliðsins, er í hópnum sem mætir Noregi og Danmörku í undankeppni HM. Hann deilir herbergi með Gunnleifi Gunnleifssyni, félaga sínum úr FH.

Við heyrðum í Matthíasi í morgunsárið og hann sagði meðal annars að hann sæi ekkert standa í vegi fyrir því að Ísland ynni Noreg. Hann mun í það minnsta gera sitt til þess.

Hvernig leggst leikurinn gegn Noregi í þig?
“Hann leggst bara afar vel í okkur og við erum fullir tilhlökkunar að takast á við nýja keppni sem er alltaf spennandi.”

Hvernig meturðu norska liðið, hverjir eru veikleikar og styrkleikar þess?
“Norska liðið tel ég vera nokkuð gott og með nokkra mjög góða leikmenn. Heilt yfir eru flestir norsku leikmannanna alltaf í góðu líkamlegu formi og geta því haldið uppi háu tempói út allan leikinn. Þeir geta þar af leiðandi pressað hátt á vellinum og eru mjög duglegir að vinna seinni bolta og skallaeinvígi. Við teljum okkur vera með svipað lið og þeir, á góðum degi ættum við að geta sigrað þá og stefnan er auðvitað sett á það. Sem mikill Liverpool-aðdáandi tel ég helstu veikleikana hjá þeim vera hjá John Arne Riise varnarlega en hann er ágætur sóknarlega.”

Hvaða leikmenn norska liðsins þarf íslenska liðið að varast?
“Erik Huseklebb, Morten Gamst, Riise bræðurnir og svo Hangeland eru þessi helstu nöfn í þetta skiptið og við höfum greint þeirra helstu styrkleika í þaula.”

Hvar sérðu möguleika Íslands í leiknum?
“Ég sé okkur ekkert því til fyrirstöðu að við vinnum þá, en þá þarf líka allt að vera í lagi. Hugarfar, dagsform og stemmning þurfa að haldast í hendur því ég get fullyrt að við erum ekki með lélegra fótboltalið en þeir.  Þetta verður mjög erfiður leikur og getur farið á hvorn veginn sem er.”

Mynd: Hilmar Þór

Nú er búið að yngja hressilega upp í íslenska liðinu. Heldurðu að það eigi eftir að skila sér í  ferskari leik?
“Alla vega miðað við “ungir gegn gömlum” á æfingu, því við í ungum rúlluðum þeim upp! En að öllu gríni slepptu þá vona ég það auðvitað. Leikurinn við Liechtenstein var náttúrulega mjög slakur af hálfu Íslands en fólk má ekki gleyma því að úrslitin í leiknum þar á undan voru mjög fín og var landsliðið ekki búið að fá á sig mark í fjórum eða fimm leikjum á undan honum. En það er stutt í skítinn ef hugarfarið er ekki í lagi. U-21 árs liðið er búið að standa sig feykilega vel og margir mjög frambærilegir leikmenn eru að koma þar upp og á næstu misserum munu þeir verða okkur afar dýrmætir.”

En leikurinn gegn Dönum, ertu spenntur fyrir hann?
“Já það verður virkilega skemmtilegur leikur held ég og að spila á Parken er örugglega frábær upplifun. Við erum mjög spenntir fyrir þeim leik en einbeitum okkur fyrst og fremst að Noregsleiknum því það er mikið betra að fara með stig með sér á Parken heldur en að fara með tap á bakinu.”

Hvernig meturðu danska liðið, veikleika þess og styrkleika?
“Danska liðið er náttúrulega mjög reynslumikið lið og er nýbúið að spila í lokakeppni HM þannig að það gefur augaleið að það verður afar erfiður leikur. Styrkleikinn hjá danska liðinu er að þeir eru mjög góðir tæknilega og eru fremstir á því sviði í Skandinavíu að mínu mati. Veikleikarnir eru samt til staðar og ég er viss um að þeir munu vanmeta okkur því þeir hafa yfirleitt náð góðum úrslitum gegn okkur.  Svo eru líka nokkrir menn meiddir hjá þeim eins og Nicklas Bendtner.”

Viltu ekki fá fullan Laugardalsvöll á föstudaginn?
“Að sjálfsögðu viljum við sjá sem flesta mæta og sérstaklega þegar svona mikið er í húfi fyrir þjóðina og allir möguleikar opnir í riðlinum. Hver einasta manneskja getur skipt sköpum. “