Mánudagur, 6. september 2010 | Snorri Sturluson | snorri@sport.is

Capello: “Rooney verður í byrjunarliðinu gegn Sviss”

Mynd: Nordic Photos

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur slegið á allar vangaveltur um tilgang þess að Wayne Rooney er mættur með landsliðsfélögum sínum til Sviss á sama tíma og meint framhjáhald hans er til umræðu í fjölmiðlum heima á Englandi; þetta er engin flótta- eða hvíldarferð hjá Rooney því hann verður í byrjunarliðinu gegn Svisslendingum annað kvöld.

“Já, hann verður í byrjunarliðinu,” svaraði Capello þegar hann var spurður út í stöðu mála hjá Rooney fyrr í dag.  “Hann hefur staðið sig vel á æfingum, ég ræddi þessi mál við hann og er klár í slaginn.  Ég veit hvenær leikmenn eru klárir og hvenær þeir eru annars hugar og hann er klár.  Hann átti frábæran leik gegn Búlgörum og ég á von á því svipuðum hlutum frá honum annað kvöld.”

“Við einbeitum okkur að leiknum, ekki einkalífi leikmannanna,” bætti Capello við.  “Við erum hingað komnir til að æfa vel og spila leik gegn Svisslendingum.”