Mánudagur, 6. september 2010 | Ragnar Vignir | ragnar@sport.is

EM 2012 | Ole Gunnar Solskjaer vonast eftir norskum sigri gegn Portúgal

Mynd: Nordic Photos

Ole Gunnar Solskjaer, norska goðsögnin sem núna þjálfar varalið Manchester United, vonast eftir því að sitt landslið nái góðum úrslitum gegn Portúgal í leik liðanna á Ullevaal vellinum í Noregi sem fram fer á morgun.

Það er aldrei að vita hvað gerist í boltanum. Það þarf ekki nema þrjár eða fjórar góðar sendingar til að búa til mark.

Norsku strákarnir spila flestir í heimalandi sínu og ef stemmingin verður með liðinu er aldrei að vita hvað gerist á morgun. Liðið hefur spilað vel í síðustu leikjum og vonandi heldur það áfram á morgun,” sagði Solskjaer við heimasíðu UEFA.