Mánudagur, 6. september 2010 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Rooney fór með til Sviss

Mynd: Nordic Photos

Enska landsliðsframherjinn Wayne Rooney fór með enska landsliðinu til Sviss en margir áttu von á því að hann yrði eftir á Englandi til að bjarga hjónabandi sínu. Rooney varð uppvís af því að halda framhjá eiginkonu sinni með vændiskonu en hann sængaði hjá henni margoft á meðan frúin hans gekk með barn þeirra undir belti. Þetta komst allt í hámæli í enskum fjölmiðlum um helgina og var jafnvel búist við því að hjónabandi þeirra hjóna myndi ljúka um helgina.

Fabio Capello ræddi einslega við Rooney í gær og niðurstaðan varð að hann fer með og verður í það minnsta í hópnum. Björgunaraðgerðir vegna hjónabandsins verða því að bíða um sinn.

Rooney er kvæntur Collen Rooney og herma fregnir af Englandi að hún hafi tekið þessum tíðindum mjög nærri sér og það sé ekki ljóst hver framtíð þeirra verður. Þau eiga eitt barn saman.