Mánudagur, 6. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Skagamenn farnir að huga að næsta tímabili

Mynd: KFIA.is

Knattspyrnudeild ÍA er hafin með undirbúning fyrir næsta keppnistímabil, þar sem hefur verið rætt við þá leikmenn sem eru með lausa samninga, samkvæmt heimasíðu ÍA.  Eftir leik ÍA og Gróttu á laugardaginn var gengið frá eins árs samingi við Gary Martin, sem var fenginn til að styrkja Skagamenn í lok júlí.

Gary líður sjálfum mjög vel á Akranesi og er ánægður með móttökunar sem hann hefur fengið þar. Hann er einnig ánægður með þjálfarann og andann í leikmannahópnum.  Gary Martin hefur styrkt lið ÍA mikið eftir að hann mætti á Skagann, en hann hefur komið með aukið sjálfstraust og gleði inn í liðið. Gary hefur skorað fimm mörk í sex leikjum þar sem hann hefur verið í byrjunarliðinu.

Næstu skref stjórnarmanna hjá knattspyrnudeild ÍA er að vinna að því augljósa markmiði, að koma liðinu upp í efstu deild á ný. Félagið hefur verið að reyna að byggja upp nýtt lið úr stórum hópi unga og efnilegra leikmanna sem hafa verið að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokk, og ætlar stjórnin  reyna halda í þá leikmenn áfram til að geta myndað sterkann kjarna á næstu árum. Samhliða því ætlar stjórnin einnig að styrkja ákveðnar stöður innan liðsins sem hafa verið sem veikastar í sumar, ef fjármagn fæst til þess.

Skagamenn hafa ekki staðið undir væntingum í sumar en þeir sitja í 5.sæti 1.deildar með 29 stig og eiga ekki möguleika á því að komast upp í efstu deild.