Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Íslands, átti góðan leik á miðjunni með íslenska liðinu en einbeitingarleysi undir lok leiksins skilaði Dönum ódýru marki sem var að lokum sigurmark leiksins. Aron sagði við Stöð 2 Sport eftir leikinn að tapið hafi verið óverðskuldað.
“Þetta er grátlegt. Það er ekki hægt að lýsa þessu, þetta er eins og við segjum í enska boltanum “kick in the balls.”
“Við gátum ekkert gert í þessu marki. Við vorum kannski of seinir út en það rennur einn til og svo rennur annar til. Þetta er eitt mesta klaufamark sem ég hef séð.”
“Við gerðum það sem við lögðum upp með. Við gerðum það og gerðum það vel. Ég held að við og íslenska þjóðin geti verið stolt af okkur.” sagði Aron eftir leikinn.
En hvernig leggst Portúgalsleikurinn í hann?
“Þetta var svekkjandi en við þurfum núna að einbeita okkur að næsta leik. Við komum bara vitlausir í þann leik og við ætlum ekki að láta neinn Cristiano gela sig í gegn, það er ekki fræðilegur möguleiki. Við þurfum að ná þremur stigum út úr næsta leik og það er gegn Portúgal. Við vitum að þeir eru með besta liðið í riðlinum en það þýðir ekkert að hugsa um það. Ef við spilum eins og við gerðum á móti Noregi þá klárum við þetta lið Portúgal.”





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook