Gunnleifur Gunnleifsson var skiljanlega ekki sáttur eftir leikinn á Parken í kvöld. Í samtali við Sport.is sagði hann að íslenska liðið hafi gert allt sem það ætlaði að gera og gott getur. Það sem væri samt blóðugt að horfa uppá væri að íslenska liðið sé ekki með neitt stig eftir leikina gegn Dönum og Norðmönnum.
“Við spiluðum vel í leiknum. Vorum yfirvegaðir í okkar aðgerðum og þetta var eins og lagt var upp með. Mér fannst Danirnir ekki skapa sér neitt í leiknum. Við reyndar skildum Rommedahl of mikið einan eftir hjá Indriða en eftir að við náðum að loka á það þá var ekki mikið í spilunum.”
Hvað með markið í kvöld. Var nokkuð við því að gera?
“Nei, ég held ekki. Ég er farinn niður og ég hefði náð boltanum en hann kom við Aron á leiðinni og ég náði þess vegna ekki til boltans. Þetta var klaufamark og það er ekkert við því að gera.”
En það er hugur í leikmönnum, það sást í kvöld?
“Okkur langar að skila okkar á vellinum. Það er sá hugur í hópnum að gera góða hluti fyrir íslensku þjóðina. Stemningin er þannig í hópnum. Við ætlum núna að vinna Portúgal. Það verður allavega allt lagt í leikinn og allir munu leggja sig 100% fram í leiknum. Þeir halda örugglega að þeir labbi í gegnum leikinn gegn litla Íslandi en það verður ekki látið gerast.”





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook