Þriðjudagur, 7. september 2010 | Ritstjórn | ritstjorn@sport.is

Ólafur Jóhannesson: “Hvað getur maður sagt eftir svona leik?”

Mynd: Hilmar Þór

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari var að vonum svekktur eftir leikinn en hann sagði í samtali við Stöð 2 Sport að íslenska liðið hefði gert nákvæmlega það sem það lagði upp með í leiknum. “Við héldum hreinu í 90 mínútur og það var mjög vel gert. En því miður þá dugði það ekki.”

“Ég sagði við mína menn eftir leikinn að allir geti borið höfuðið hátt þar sem við spiluðum vel allan leikinn og það var gott skipulag í liðinu. Það var gott skipulag og allir skiluðu sínu 100% í leikinn.”

Aðspurður um skiptingar í leiknum segir Ólafur: “Við vorum að velta fyrir okkur skiptingum en það er erfitt að koma inná í svona leik þegar menn eru heitir. Það tekur alltaf tíma. Eflaust hefðum við átt að gera breytingar fyrr en okkur fannst þetta vera allt í lagi. Þeir voru ekkert að opna okkur og þetta var að ganga vel þannig að við hugsuðum um það í 45 mínútur en ákváðum að gera það ekki.”

Næst er erfiður leikur gegn Portúgal. “Við settum okkur ákveðin markmið fyrir þessa leiki og ég sagði við strákanna að nú þyrftum við einfaldlega að vinna Portúgal á heimavelli. Þeir tapa í kvöld og það er ekkert gott fyrir okkur. En við ætlum að fara í Portúgalsleikinn og leggja allt undir þar og fá þrjú stig úr leiknum.”