Senegalski framherjinn hjá Manchester United, Mame Biram Diouf, er genginn til liðs við Hannover í þýsku úrvalsdeildinni. Diouf, sem er 24 ára gamall, skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við þýska félagið. Kaupverðið er talið vera 1.5 milljón punda. Diouf, sem er fæddur í Senegal, gekk til liðs við Rauðu Djöflana árið 2009 frá norska liðinu Molde.
Knattspyrnustjóri Hannover, Mirko Slomka, sagði að Diouf væri frábær viðbót við lið sitt. "Hann verður að einbeita sér að aðlagst fljótt svo hann geti hjálpað okkur með komandi verkefni í deildinni og í Evrópudeildinni" sagði Slomka. Hannover situr í 7. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
Diouf sem náði aldrei að aðlagast hjá United var á láni hjá Blackburn Rovers í fyrra. Þar lék hann 26 leiki og skoraði 3 mörk. Hann lék aðeins 5 leiki fyrir Englandsmeistara United og skoraði í þeim 1 mark.



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook