Tveir leikir voru á dagskrá í ítölsku Seria A deildinni í dag. Mikill miðjuslagur var þegar að Catania tók á móti Parma og svo var toppslagur nú í kvöld þegar að Juventus tók á móti Udinese. Catania og Parma skildu jöfn, 1-1 en Juventus vann stórleik helgarinnar þegar að þeir unni Udinese 2-1.
Aðeins munaði einu stigi á Catania og Parma fyrir leikinn í dag og sátu liðin í 11. og 15 sæti, Parma fyrir ofan. Það voru heimamenn í Catania sem að tóku forystuna á 35. mínútu þegar að Bergessio kom þeim yfir. Það var svo Modesto sem að jafnaði fyrir gestina frá Parma á markamínútunni miklu, 43. Fleiri urðu mörkin ekki og sættust liðin á skiptan hlut, niðurstaðan: 1-1. Við þessi úrslit munar enn einu stigi á liðunum en þau hækkuðu sig bæði um sæti í deildinni. Parma er nú í því tíunda og Catania í 13. sæti.
Juventus tók á móti Udinese í Tórínó-borg í kvöld. Fyrir leikin munaði þremur stigum á liðunum, Juventus í efsta sæti deildarinnar með 41 stig en Udinese í 3. sæti með 38 stig. Með sigri hefðu Udinese getað tyllt sér á toppinn með Juventus. Það gekk þó ekki eftir og unnu heimamenn góðann 2-1 sigur. Alessandro Matri skoraði tvívegis fyrir toppliðið en Antonio Floro Flores skoraði mark gestana. Með þessum sigri náðu Juventus fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar en í öðru sæti sitja AC Milan. Þeir leika gegn Cagliari á morgun og geta minnkað forskot Juventus aftur niður í 1 stig.
Catania 1-1 Parma
1-0 Bergessio 35. mín
1-1 Modesto 43. mín
Juventus 2-1 Udinese
1-0 Matri 42. mín
1-1 Flores 56. mín
2-1 Matri 62. mín



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook