Laugardagur, 28. janúar 2012 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is

Spænski boltinn | Real Madrid náði 7 stiga forskoti á toppnum eftir að Barcelona mistókst að sigra Villareal

Mynd: Nordic Photos

Fjórir leikir voru á dagskrá í spænsku La Liga deildinni í dag. Bæði Barcelona og Real Madrid áttu leiki. Real Madrid tók á móti Real Zaragoza á Santiago Bernabeu. Þar fóru leikar 3-1 fyrir heimamenn, eftir að þeir höfðu lent 1-0 undir. Barcelona fór í heimsókn til Gula Kafbátsins í Villareal. Leikurinn var jafn framan af en Barcelona hrökk í gang í síðari hálfleik. Það dugði þó ekki til og lyktaði leiknum með markalausu jafntefli.

Espanyol tók á móti Mallorca fyrr í dag. Þar lauk leiknum með 1-0 sigri heimamanna. Espanyol hafa verið á mikilli siglingu upp á síðkastið og héldu þeir henni áfram í dag. Leikurinn var algjör vinnusigur fyrir þá bláklæddu. Það var  leikmaður Manchester City, Vladimir Weiss , sem að skoraði mark heimamanna í dag, strax á 19. mínútu.  Hann er samningsbundinn Manchester City en er á láni hjá Espanyol. Þessi piltur er frá Slóvakíu og er aðeins 22 ára gamall. Róðurinn léttist fyrir heimamenn þar sem að Aouate fékk rautt spjald í liði Mallorca á upphafsmínútu síðari hálfleiks. Lokatölur 1-0. Espanyol lyfti sér upp í 5. sætið með þessum sigri og eru aðeins fjórum stigum frá Valencia sem að sitja í 3. sætinu.

Topplið Real Madrid tók á móti botnliði Zaragoza í dag. Real Madrid var yfirburðaraðilli í leiknum, allt frá fyrstu mínútu. Það kom því mjög á óvart þegar að Lafita kom gestunum yfir eftir aðeins 11. mínútna leik. Þetta var í raun fyrsta sókn gestana og endaði hún með marki. Þjálfari Zaragoza, Javier Aquierra, fagnaði markinu ekki mikið enda vissi hann að heilar 80 mínútur voru eftir gegn feikisterku liði Real Madrid. Það tók Real Madrid 21 mínútu að jafna metin og var þar að verki Kaka. Undrapilturinn Cristiano Ronaldo skoraði síðan í upphafi síðari hálfleiks, af stuttu færi og kom sínum mönnum yfir, 2-1. Það var síðan Þjóðverinn Mesut Özil sem að tryggði lærisveinum Jose Mourinho 3-1 sigur. Zaragoza er í tómum vandræðum og eru heilum 6 stigum á eftir næst neðsta liðinu, Sporting Gíjón. Real hefur hinsvegar 7 stiga forskot á Barcelona á toppi deildarinnar.

Barcelona varð að vinna Villareal þegar að liðin mættust seint í kvöld. Villareal er í bullandi vandræðum og sitja í 17. sæti deildarinnar. Fyrri hálfleikur var tíðindalítill en Barcelona sótti mun meira. Sama var upp á teningnum í þeim síðari. Barcelona var meira með boltann og alltaf líklegri til þess að skora. Fabregas átti til að mynda skot í slá fyrir gestina á 70.  mínútu. Boltinn vildi ekki inn hjá Barcelona og urðu þeir því að sætta sig við 0-0 jafntefli. Hrikalega svekkjandi úrslit fyrir Katalóníumennina í Barcelona sem að þurftu á stigunum að halda til þess að missa ekki Real Madrid lengra frá sér á toppi deildarinnar. Villareal prísa sig hinsvegar sæla með stigið enda er það mikilvægt í fallbaráttunni.

Espanyol 1-0 Mallorca
1-0 Weiss 19. mín

Rayo Vallecano 2-3 Athletic Bilbao
 1-0 Michu 10. mín
1-1 Llorente 17. mín
1-2 Llorente 23. mín
2-2 Arribas 27. mín
2-3  Llorenta 68. mín

Real Madrid 3-1 Real Zaragoza
0-1 Fatifa 11. mín
1-1 Kaka 32. mín
2-1 Ronaldo 49. mín
3-1  Özil 56. mín

Villareal 0-0 Barcelona