Sunnudagur, 12. febrúar 2012 | Hilmar Þór Guðmundsson | hilmar@sport.is

Afríkukeppnin | Öskubuskuævintýri Zambíu varð að veruleika

Afríkubikarinn eftirsótti

Zambía varð rétt í þessu Afríkumeistari en liðið vann Fílabeinsströndina 8-7 í vítakeppni. Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma en Dider Drogba klikkaði úr vítaspyrnu í leiknum en hann skaut hátt yfir markið úr vítinu. Það átti örugglega enginn von á því að Zambía myndi stríða Fílabeinsströndinni en leikurinn var talinn formsatriði fyrir Drogba og félaga hans. En Zambía var með áhorfendur á sínu bandi og ætlaðu að tileinka þeim sem létust í mesta slysi í fótboltasögu í Zambíu fyrir 19 árum sigurinn og það varð að veruleika.

Zambía 0-0 Fílabeinsströndin (8-7 eftir vítakeppni)

Lið Fílabeinsstrandarinnar var sterkari aðilinn í leiknum en leikmenn Zambíu léku skynsaman varnarleik og náðu þeir að loka á flestar sóknir Fílabeinstrandarinnar. Það stefndi þó í að Fílabeinsströndin myndi vinna þegar víti var dæmt á Zambíu á 70.mínútu. Didier Drogba, leikmaður Chelsea, tók vítið en hann skaut hátt yfir markið. Leikmenn virkuðu þreyttir og þungir undir lokin enda völlurinn ekki beint sá besti, laus í sér og þungt að spila á honum. Ekkert mark kom í framlengingu sem var heldur róleg og þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni.

Það var skorað úr fyrstu 14 spyrnunum í vítakeppninni en sá fyrsti til að klikka var Kolo Toure, leikmaður Man.City. Kennedy Mweene markmaður Zambíu varði laglega frá honum. En næst kom Rainford Kalaba frá Zambíu en hann skaut hátt yfir markið. Þá var komið að Gervinho, leikmanni Arsenal, en hann skaut framhjá en líklega hefur handónýtur vítapuntkurinn haft sitt að segja. Stoppila Sunzu tók seinustu spyrnu kvöldsins en hann skoraði af öryggi og tryggði Zambíu Afríkubikarinn og Öskubuskuævintýri Zambíu varð að veruleika.

Landslið Zambíu tileinkuðu þeim sem létu lífið árið 1993 titilinn en þá hrapaði flugvél Zambíu og 18 leikmenn og starfsfólk frá landsliði Zambíu létu lífið. Zambía heldur samt titlinum aðeins í eitt ár en aftur er keppt á næsta ári. Það er gert til að færa Afríkukeppnina frá EM og HM ári en í ár er keppt á EM í knattspyrnu.