Alls áttu að fara fram fimm leikir í ítölsku Seria A deildinni í dag en að lokum voru þeir aðeins þrír. Tveimur leikjum var frestað, þar á meðal leik Juventus og Bologna sem er til þess að AC Milan situr enn í toppsæti deildarinnar eftir sigur á Udinese í gær. Inter Milan náði ekki að halda í við toppliðin fjögur þegar að þeim mistókst á vinna Novara á heimavelli í dag. Gestirnir frá Novara unnu óvæntan 1-0 sigur. Í öðrum leikjum burstaði Catania lið Genoa og Atalanta og Lecce gerðu markalaust jafntefli.
Inter þurfti nauðsynlega á þremur stigum að halda í dag til þess að halda í við liðin sem verma fjögur efstu sæti deildarinnar. Inter situr í 5. sæti með 36 stig eftir leiki dagsins, 5 stigum frá Udinese sem sitja í 4. sæti. Þrátt fyrir sigur tókst botnliði Novara ekki að hækka sig um sæti og sitja þeir því enn sem fastast í botnsæti deildarinnar. Það var Andrea Caracciolo sem að skoraði eina mark leiksins á 56. mínútu. Flestir héldu að Inter Milan myndi jafna metinn þegar að Novara missti mann af velli 80. mínútu en allt kom fyrir ekki og töpuðu lærisveinar Claudio Ranieri.
Catania og Genoa mættust í leik sem flestir töldu að Genoa ætti meiri möguleika á að vinna. Genoa situr í 10. sæti deildarinnar en fyrir leikinn sat Catania 15. sæti. Með sigrinum skaust Catania upp í 12. sæti. Leiknum lauk 4-0 fyrir heimamenn í Catania. Heimamenn komust yfir strax á 8. mínútu þegar að Francesco Lodi skoraði úr vítaspyrnu. Staðan í hálfleik var 1-0. Í síðari hálfleik burstu allar flóðgáttir og skoruðu heimamenn 3 mörk á 25 mínútna kafla. Pablo Barrientos skoraði tvívegis áður en Gonzalo Bergessio rak síðasta naglann í kistu Genoa. Lokatölur 4-0.
Þá gerðu Atalanta og Lecce markalaust jafntefli í bragðdaufum leik. Eins og áður sagði var leik Juventus og Bologna frestað, sem og viðureign Parma og Fiorentina.
Úrslit dagsins:
Atalanta 0-0 Lecce
Catania 4-0 Genoa
1-0 Lodi 8. mín (VSP)
2-0 Barrientos 49. mín
3-0 Barrientos 56. mín
4-0 Bergeisso 62. mín
Inter Milan 0-1 Novara
0-1 Caracciolo 56. mín



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook